Dagbók Lífsins Glósa!
Draugahús!
Miðvikudagur 3. september 2008

Þegar við bjuggum á Bragagötunni var hús þar rétt hjá á Njarðargötu sem ég leit hýrum augum til. Fannst það bjóða upp á ýmsa möguleika fyrir laghenta menn. Ég hafði meira að segja upp a eigandanum og gott ef ég hringdi ekki í hann. Það varð þó ekkert úr kaupum enda kapítal ekki á lausu á þeim tíma. Ég velti því mikið fyrir mér hvað hægt væri að gera við húsið. Leyst þó ekki nægjanlega vel á að búa þar sjálfur enda ekki pláss fyrir bílskúr.

Það ótrúlega er að þetta hús er ennþá jafn mikið draugahús og sem aldrei fyrr gott fyrir laghenta! Það hefur enda verið í fréttunum fyrir draugagang og hirðuleysi. Hvað í ósköpunum hvetur menn til að eiga svona og gera ekkert í því. Það hefði verið hægt að losna við þetta hús fyrir a.m.k. nokkra tugi milljóna þegar uppgangurinn og framkvæmdavilji verktaka var sem mestur fyrir nokkrum misserum...

...sagði Olafur Agust klukkan 17:51 | Tjáðu þig (0)
Brosað gegnum tárin!
Þriðjudagur 2. september 2008

Það er orðið ansi langt síðan að Hólmfríður fékk símtal þar sem henni var ruglað saman við aðra fegurðardrottningu með sama nafni. Þegar við rifjum það upp var það sennilega síðast þegar Vala Matt hringdi fyrir allnokkrum árum og vildi fá okkur í Innlit/útlit.

Nú var það kjólameistari nokkur sem sagðist hafa saumað brúðkaupskjólinn hennar Hófi og vildi fá að taka af honum mynd. Spjallaði heillengi við Hólmfríði svo að henni gafst tími til að fletta "alvöru" drottningunni upp í símaskránni og gefa saumakonunni síma og heimilsfang í Garðabænum til að hafa samband við. Gott ef þær urðu ekki ásáttar um að ef Hólmfríður mín þyrfti á kjól að halda þá myndi hún glöð verða við því kalli!

...sagði Olafur Agust klukkan 8:13 | Tjáðu þig (0)
Nokkrar myndir!
Þriðjudagur 26. ágúst 2008

Kvartanir hafa verið að berast af myndaleysi. Fólk segist ekki lengur muna hvernig Ágústa lítur út því letin við myndabirtingar hefur verið algjör. Það er því ágætt að ekki eru allir jafn latir. Enn betra að margt sem við gerðum í sumar gerðum við með Mæju & Nökkva. T.d. sést til okkar hér að ganga á Eldborg. Á öðrum stað sést til okkar í ótrúlegri blíðu í Þjórsárdal. Ekki löngu seinna var það Gæsavatnaleið, Herðubreiðarlindir, Kverkfjöll, Kárahnúkar, Egilsstaðir, ofl...

Kannski, bara kannski koma einhverjar myndir frá okkur bráðlega. Reyndar má finna tvær hérna frá síðustu helgi...

...sagði Olafur Agust klukkan 0:12 | Tjáðu þig (0)
Erfiður mánudagsmorgun!
Mánudagur 25. ágúst 2008

Við litla fjölskyldan vorum óvanalega þreytt í morgun þegar klukkan hringdi. Það var snoozað vel og lengi og þegar ljóst var að þetta stefndi í letidag sagði ég við Hólmfríði að við þyrftum að drulla okkur á lappir, klukkan átta og aðeins betur. Það er þannig að við erum bara með eina vekjara klukku og varpar hún tímanum á loftið, algjör snilld, að við héldum.

Við hlupum fram, reyndum að vekja Ágústu sem á að mæta á leikskólann kl hálf níu í aðlögun. Ekki góð frammistaða að mæta seint á fyrstu dögunum. Stúlkan var óvanalega erfið og þurfti að vekja hana með afli og svo klæða hálf sofandi í fötin. Við borðuðum morgunmat í hraði og beint út í bíl. Allt á mettíma! Ég undraðist eitt lítið andartak þá þögn sem var í götunni, enginn bílaniður, eins og allir væru sofandi. Bíllinn hrökk í gang og þar sem ég bakka út verður mér varð litið á klukkuna í bílnum. Þá rann upp fyrir mér að sennilega væri vekjaraklukkan ekki alveg með fulle fem eins og norðmaðurinn segir! Bíllinn vildi endilega halda því fram að klukkan væri 6:20.

Það var því ekkert annað að gera fyrir Ágústu og Hólmfríði en að fara inn aftur og leggja sig. Ég fór í vinnuna, nema hvað að greinilega er ekki ætlast til að maður mæti svona snemma því kaffivélin er læst inni til kl átta. Ekki spyrja afhverju! :)

...sagði Olafur Agust klukkan 7:05 | Tjáðu þig (1)
Órakaðir leggir!
Mánudagur 18. ágúst 2008

Við litla fjölskyldan eyddum helginni í að reyna að klára loks framkvæmdir á heimilnu, baðið og forstofuna. Þetta er alveg að fæðast enda kominn tími til. Það bætist þó alltaf á verkefnalistann og flækjustigið eykst. Ég sýp annars seyðið af því í dag að hafa verið í stuttbuxum við flísalagningu í gær. leggirnir á mér eru allir útataðir í flísalími sem tekur sennilega mannsaldur að losna við. Það er enda ekki gott að kroppa þetta af því ég hef ekki lagt það í vana minn að raka á mér leggina. Ég er því í síðbuxum í dag fyrir þá sem eru áhugasamir um þetta! :)

Þetta er annars góður mánaðardagur og hefur allavega einu sinni valdið miklum straumhvörfum í mínu lífi...

...sagði Olafur Agust klukkan 8:30 | Tjáðu þig (9)
Sumarið sem leið!
Mánudagur 11. ágúst 2008

Þá tekur alvaran við. Ágústa fer til dagmömmu í rúmlega eina viku áður en hún byrjar á leikskólanum Hofi. Við byrjum líka að vinna á morgun. Það er reyndar bara gott að komast í rútínu aftur. Maður verður bara latur í öllu þessu fríi. Ég held ég hafi sjaldan þurft að sofa svona mikið, 10 tíma nætur og síðdegislúr var að verða að venju á tímabili. Nú er það að baki.

Reyndar eitt og annað planað næstu vikurnar. Möguleg laugavegsganga sem var frestað í júlí vegna veðurs. Möguleg helgarútilega ef veður gefst, svo smalamennska, haustferð norður í land og eitt og annað. Annars er auðvitað ótrúlegt hvað sumarið leið hratt...eins og alltaf. :)

Ég verð samt áfram í stuttbuxunum fram í september! Þessu er ekki alveg lokið!

...sagði Olafur Agust klukkan 0:15 | Tjáðu þig (3)
Útilega!
Miðvikudagur 30. júlí 2008

Erum búin að vera á ferðinni um landið núna í rúmlega viku. Megintímann höfum við reyndar verið á Egilsstöðum í steikarblíðu. Varla rignt á okkur sem verður að teljast gott. Við hófum ferðina með Mæju og Nökkva sem leið lá s.k. Gæsavatnaleið sem er auðvitað mesti jeppavegur á Íslandi (svo nú getur maður fengið sér Yaris). Komum við í Kverkfjöllum og öllum þessum helstu hálensistöðum. Eltum einnig slóðir Fjalla-Eyvindar og gerðumst sérstaklega áhugasöm um hans ævi og störf sem sauðaþjófur.

Næsta skref er að fara á morgun á Flateyjardalinn góða, hin árlega dvöl þar. Sjáum fram á meiri blíðu, sólsting, veiðimennsku og ómennsku. Stefnum að heimkomu á þriðjudag í fyrsta lagi. Fyrir þjófalíðinn sem stundar þessa síðu er vert að minnast á píuna sem gætir heimilisins og Adda varðkött sem bítur hvern sem fyrir verður!

Þökum nágrannanum hér á Egilsstöðum fyrir frítt net! :)

...sagði Olafur Agust klukkan 20:51 | Tjáðu þig (0)